nokkrar pælingar um 1.maí.
Ég var lasin á fyrsta maí í ár, sem er skellur því það er uppáhalds svona, dagurinn minn. Skildist það hefði verið gott veður og Palestínufánar á lofti, við því segi ég, gott mál! Ég samgleðst.
Síðustu vikur hafa auglýsingar um 1.maí poppað stanslaust upp á skjáinn hjá mér(algóryþminn veit sínu viti), og ég get sagt ykkur það kæru vinir, að mascot, táknmynd, fulltrúi, fyrirmynd 1.maí göngunnar í ár er leikarinn Aron Mola. Fínasti kall, var með mér í LHÍ í smá stund og ég hef yfir engu að kvarta. En það er ÁHUGAVERT. Fyrir ári prýddi Felix Bergsson 1.maí auglýsingarnar, og árið áður var það Jakob Birgis. Þetta eru allt menn sem ég get LOFAÐ YKKUR að mæta ekki í kröfugöngu án þess að fá borgað fyrir það. Ég reyndar veit að Aron Mola var ekki í göngunni í dag því hann var að kveikja sinubruna hjá sumarbústaðnum sínum, en það er annað mál.
Hver er að taka þessar ákvarðanir? Hver sat á skrifstofu verkalýðsfélags og brainstormaði hver gæti leikið í auglýsingu ársins og hugsaði já, fáum Aron Mola leikara. Hann nær til krakkanna. Hann er Snapchat-stjarna!
Þetta er einhvernveginn svo lýsandi fyrir stöðu verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi. Vöfflur, kósí, gengið niður Skólavörðustíg því að það er of langt að ganga frá Hlemmi, þetta “fram þjáðir menn í þúsund löndum” í kaldhæðnislegum flutningi leikara og snapchat stjörnunnar Arons Mola og cover photo sem sýnir verkafólk með kaskeiti og fána, sem er ekkert nema útjöskuð fagurfræði (sem ég játa að ég er virkilega heit fyrir en er samt eiginlega orðin merkingarlaus).
Ég er veik í dag sem lýsir sér þannig að ég er með mjög mikinn hausverk, það mikinn að ég er frekar viss um að að ég sé með heilaæxli, jafnvel þó Kelti sé með sama hausverk og sömu flensu og það sé ólíklegt að við séum bæði með heilaæxli á sama tíma.. Þegar ég var 17 ára var ég svo viss um að ég væri með brjóstakrabbamein að Gréta þurfti að panta tíma hjá lækni fyrir mig og neyða mig í hann. Ég var ekki með brjóstakrabbamein, ég er líklega ekki með heilaæxli en biðlistinn í tíma hjá heimilislækni er frekar mikið lengri í dag en hann var árið 2009(mitt besta ár). Svo ég reyni að lifa þetta af. Ég er að reyna að gera bloggin mín ekki svona stutt, kíkti yfir þessi tvö blogg sem ég er búin að skrifa og fannst smá niðurlægjandi að þau væri 1 og 2 minute read. Ég er ekki long-form bloggari en þetta kemur allt saman :)
bæbæ :)